Áhugaverð ráðstefna um erlendar fjárfestingar
Yfir 100 manns mættu á ráðstefnu Fjárfestingarstofu, iðnaðarráðuneytisins og Útflutningsráðs í síðustu viku sem bar yfirskriftina Beinar erlendar fjárfestingar: böl eða búhnykkur? Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra var á ráðstefnunni og má nálgast fyrirlestrana hér.
Á ráðstefnunni var fjallað um hvers vegna Ísland þarf beinar erlendar fjárfestingar, möguleikana, tækifærin til framtíðar ásamt hlutverki þeirra við endurreisn Ísland. Fjallað var um þær erlendu fjárfestingar sem nú þegar eru í gangi og eru mögulegar í framtíðinni. Erlendir fjárfestar frá Verne Global, Framestore og Becromal sögðu frá reynslu sinni ásamt því að rætt var um hvernig hægt væri að draga hingað grænar og samfélagslega ábyrgar fjárfestingar. Einnig var sagt frá niðurstöðum rannsóknar sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Capacent Glacier um viðhorf og skoðanir Íslendinga á erlendum fjárfestingum. Niðurstöður þeirra rannsóknar verða gerðar opinberar um miðjan næsta mánið. Fundarstjóri var Einar Karl Haraldsson, stjórnarformaður Fjárfestingarstofu.
Hér má nálgast ræður og fyrirlestra:
Ávarp
Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
Importance of foreign inward investments for Iceland
Prof. Dr. W.P. Vossen, partner, PricewaterhouseCoopers, Belgíu
Erlendar fjáfestingar – nútíð og framtíð
Þórður H. Hilmarsson, forstöðumaður Fjárfestingastofu
How to attract green and socially responsible investments to Iceland?
Jean-Dominique Rugiero, managing partner, Daxam Sustainability Services, Svíþjóð
Nánari upplýsingar um fyrirlestra og fyrirlesara veitir Inga Hlín Pálsdóttir, inga@utflutningsrad.is.
Myndir frá ráðstefnunni.








